27/01/2022
Hver erum við - hvert stefnum við?
Þér er boðið á fræðslustund á netinu þriðjudaginn 8. febrúar kl. 15-16.
Fyrirlesari verður Greg Aikins, Íslandsvinur og kristniboði, höfundur bókarinnar Ný sjálfsmynd. Kristni á Íslandi á 21. öld. Tækifæri verður fyrir fyrirspurnir og samtal. Þátttaka er ókeypis.
Við lifum á spennandi tímum óvissu og óþreyju í kjölfar heimsfaraldurs. Margir velta fyrir sér hvað Guð vilji kenna okkur um eðli og starfsemi kirkjunnar við þessar aðstæður. Eigum við að reyna að halda áfram eins og ekkert hafi breyst?
Með orðum Gregs: Vegna þess að kirkjan er lifandi á það ekki að koma okkur á óvart að við þurfum af og til að fara í sjálfsskoðun, sérstaklega þegar við lifum á tímaskeiði eins og póstmódernisma og „eftir-kristindómi.“ Á þessum tíma þegar ýmislegt er breytt frá því sem áður var þurfum við öll sem erum kristin að spyrja: „Hver erum við sem kirkja?“ og horfa á sjálf okkar í gegnum augu Jesú Krists sem er enn þá að byggja sína kirkju.
Bók Gregs hvetur til hugarfarsbreytingar varðandi sjálfsmynd okkar sem kirkju Jesú Krists, bendir á hlutverk okkar og gefur hagnýt ráð um starf okkar í nútímanum á Íslandi.
Nú gefst tækifæri að heyra í höfundinn sem mun lýsa innihald bókarinnar og taka á móti spurningum um efni hennar. Samband Íslenskra Kristniboða og Salt ehf. bjóða upp á fyrirlestur og umræðu á Zoom þar sem Greg flytur erindi og leiðir umræður. Fundurinn er opin öllum þeim sem hafa áhuga á þetta efni.
Skráning fer fram með pósti á [email protected] eða í síma 5334900. Við þurfum nafn, netfang og símanúmer til öryggis. Þátttakendur fá senda slóð á fundinn mánudaginn 7. febrúar.
Bók Gregs er til sölu í helstu bókaverslunum, Kirkjuhúsinu, Jötunni, Basarnum nytjamarkaði, skrifstofu SÍK og á saltforlag.is.
Í tengslum við fræðslustundina verður kynnt tilboð um afslátt fyrir leshópa.