05/08/2021
45 mín námskeið að hefjast ☺️
Ekki vera hökkuð!
Frítt 45 mínútna vefnámskeið um öryggi á samfélagsmiðlum í boði Pipar\TBWA, Pipar\Engine og Ghostlamp, í dag 5. ágúst kl. 10:00, fyrir einstaklinga og fyrirtæki.
Hvernig hakka netþrjótar sig inn á samfélagsmiðla og hvernig er hægt að koma í veg fyrir það? Ertu hrædd(ur) um Instagrammið þitt eða hefur einhver hakkað sig inn á auglýsingareikninginn þinn eða Facebook Business Manager? Hverjar eru afleiðingarnar? Hvað getur þú gert til að tryggja öryggi þinna reikninga?
Þessum spurningum verður svarað á 45 mínútna vefnámskeiði fimmtudaginn 5. ágúst kl. 10:00. Þar mun Hallfríður Jóhannsdóttir, samfélagsmiðlasérfræðingur hjá Pipar\TBWA, The Engine og Ghostlamp í Osló, fara yfir það hvernig fólk og fyrirtæki geta komið í veg fyrir að netþrjótar hakki sig inn á reikningana þeirra og hvernig hægt er að bera kennsl á og forðast vefveiðar (e. phishing).
„Við hjá Pipar\TBWA, The Engine og Ghostlamp höfum mjög mikla reynslu og þekkingu á öllu sem viðkemur samfélagsmiðlum, þar á meðal öryggismálum og öruggri notkun samfélagsmiðla,“ segir Hallfríður. „Samfélagsmiðlar eru stór hluti af daglegu lífi fólks og mikilvægur þáttur í rekstri fyrirtækja. Að lenda í hakki getur því verið mikið áfall, bæði fyrir fólk og fyrirtæki,“ segir hún. „Þess vegna viljum við deila okkar þekkingu um öryggi á samfélagsmiðlum og örugga notkun þeirra ókeypis, af því þetta skiptir fólk raunverulegu máli,“ segir Hallfríður.
Um Hallfríði:
Hallfríður Jóhannsdóttir starfar sem samfélagsmiðlasérfræðingur hjá Pipar\TBWA, The Engine og Ghostlamp í Osló. Einnig hefur hún um margra ára skeið haldið námskeið um notkun og öryggi í notkun samfélagsmiðla á alþjóðlegum vettvangi.
Hún er sérfræðingur í stafrænni markaðssetningu frá Digital Marketing Institute, er viðurkennd sem Facebook Blueprint Professional Buyer og með viðurkenningu frá Content Marketing Norway sem samfélagsmiðlasérfræðingur og sérfræðingur í efnismarkaðssetningu.
Áður starfaði Hallfríður hjá NITO (The Norwegian Society of Engineers and Technologists, sem eru stærstu samtök verk- og tæknifræðinga með bakkalár-, meistarapróf eða hærri menntun í Noregi). Þar var hún vefstjóri og hafði umsjón með samfélagsmiðlum samtakanna, með áherslu á markaðssetningu og greiningar á Facebook, Instagram og LinkedIn. Auk þess hefur fjöldi fyrirtækja fengið hana til liðs við sig sem sérfræðing á sviði stafrænnar áætlanagerðar og sem samfélagsmiðlasérfræðing.
Hallfríður er hin fullkomna blanda af stefnumótanda og sérfræðingi, með mikinn áhuga á samfélagsmiðlum og stafrænum samskiptum. Hún er vinsæll fyrirlesari og ráðgjafi á sviði stefnumótunar og efnisöflunar á öllum samfélagsmiðlarásum, með víðtæka reynslu af markaðssetningu á samfélagsmiðlum.
Hún hefur þjálfað og haldið námskeið fyrir um 100 stjórnendur og fyrirtæki á borð við Gjensidige, Taxback International, Maskingrossisternes Forening, Bergen Kommune, Herøya Industripark, Trygg Trafikk, Norges Forskningsråd, Nelfo, NHO, UiO, Ass Bryggeri, Stavanger Kommune, Scandic Hotels, Thon Hotels, Storebrand, Hansa-Borg Bryggerier, BUFDIR, Kristiansand Municipality, Necon Energi, NEAK, NMBU, Conscia Norway, TU Jobb og fleiri.
Hún heldur námskeið á íslensku, ensku og norsku, bæði fyrir félög og opinbera aðila, en hennar styrkleiki liggur einkum í því hvernig B2B fyrirtæki geta starfað með skilvirkari hætti, aukið sýnileika sinn og náð árangri á samfélagsmiðlum, einkum LinkedIn.
Skráðu þig hér: https://pipar.is/ekkiverahokkud