Heima er komið í heild sinni í Sjónvarp Símans Premium. Heima er sex þátta sjónvarpsröð þar sem sjónunum er beint að því sem við öll þráum; að upplifa okkur heima. Í hverjum þætti er rætt við fólk úr ýmsum áttum og það heimsótt – til síns heima. En hvað er heima? Er það staður, land, fólk? Hús, hlutverk, innri friður? Sjáðu alla þættina núna í Sjónvarpi Símans Premium. Upplagt í hámhorf! Gríma Irmudóttir annaðist dagskrárgerð. Hún tekur jafnframt viðtöl og skrifar handrit ásamt Kristbjörgu Bóel Steindórsdóttur. Framleiðandi er Tinna Jóhannsdóttir og klippingu annaðist Hermann H. Hermannson. #Siminn #sagafilm
Ævintýraþyrstir athugið: Drekaflug á Grænlandsjökli 🎿
Við hjá Sagafilm hlökkum til að deila með ykkur heimildamyndinni Eftirsókn eftir vindi. Leiðangur niður jökul austur Grænlands.
Eftirsókn eftir vindi er aðgengileg á RÚV til 9. apríl 2022.
➡️ https://www.ruv.is/.../eftirsokn-eftir-vindi/31725/9ehmeh
Njótið vel! 🌟
Wolka - kemur í bíó 15. október
Wolka, ný íslensk/pólsk kvikmynd kemur í bíó 15. október!
Stella Blómkvist 2 - Trailer
Önnur þáttaröð af Stellu Blómkvist kemur í heild sinni í Sjónvarp Símans Premium 30. september 🔥
Láttu þá sjá - á RÚV
Láttu þá sjá er ný íslensk heimildarmynd um lífshlaup Jónasar Kristjánssonar, læknis og stofnanda Náttúrulækningafélags Íslands og Heilsuhælisins í Hveragerði. Jónas, sem fæddist árið 1870 og lést 1960, var brautryðjandi á ýmsum sviðum og ötull við að kynna náttúrulækningastefnuna en lækningaaðferðir hans þóttu sumar allnýstárlegar á sínum tíma.
Jonni Ragnarsson sá um leikstjón og Margret Jonasdottir framleiðir fyrir Sagafilm í samvinnu við Náttúrulækningafélag Íslands.
Áhugaverð mynd á RÚV, sunnudaginn 12. september kl. 19:45.
Nærumst og njótum | Skráðu þig núna!
Er vonlaust að elda það sama fyrir alla fjölskylduna? Gleymirðu að borða eða kanntu ekki að elda fyrir einn? Eru allir úti um allt og enginn heima á sama tíma til að borða? 🤔
Við leitum að allavega fjölskyldum, einstaklingum og pörum til að taka þátt í gerð nýrrar sjónvarpsþáttaraðar sem sýnd verður á RÚV. Þar mun Anna Sigríður Ólafsdóttir prófessor í næringarfræði við Háskóla Íslands, aðstoða þátttakendur að enduruppgötva nautnina við næringarríka máltíð ✨
Ef þú þekkir þig og/eða þína í þessum eða sambærilegum aðstæðum og langar til að gera eitthvað í málunum.
Skráðu þig þá á www.njotum.is 👈
—
RÚV - Tinna Jóhannsdóttir - Ragnhildur Steinunn
Lesblinda - Trailer
Lesblinda - ný íslensk heimildamynd á RÚV fimmtudaginn 25. feb kl. 20:00 ✨
Hækkum rána - Trailer
Heimildamyndin Hækkum rána í opinni dagskrá sunnudaginn 21. febrúar kl. 18:20 í Sjónvarpi Símans.
Árið 2015 var körfuboltaflokkur fyrir stelpur stofnaður á Íslandi. Þær voru þjálfaðar eins og leiðtogar utan vallar og afrekskonur innan vallar. Þær settu sér snemma það markmið að keppa ávallt við þá bestu og voru sigursælar í drengja- og stúlknamótum. Þetta er saga 8-13 ára stúlkna sem vildu breyta viðmiðum í kvennakörfu á Íslandi. Með miklum fórnarkostnaði tókust þær á við það mótlæti sem því fylgdi 🏀✨💪
Hækkum rána - Trailer
Heimildamyndin Hækkum rána er komin í Sjónvarp Símans Premium en verður einnig sýnd í opinni dagskrá fimmtudaginn 11. febrúar kl. 20:35 í Sjónvarpi Símans.
Árið 2015 var körfuboltaflokkur fyrir stelpur stofnaður á Íslandi. Þær voru þjálfaðar eins og leiðtogar utan vallar og afrekskonur innan vallar. Þær settu sér snemma það markmið að keppa ávallt við þá bestu og voru sigursælar í drengja- og stúlknamótum. Þetta er saga 8-13 ára stúlkna sem vildu breyta viðmiðum í kvennakörfu á Íslandi. Með miklum fórnarkostnaði tókust þær á við það mótlæti sem því fylgdi 🏀✨💪
Fyrsti þáttur - Hvað getum við gert?
Í fyrsta þætti "Hvað getum við gert?" fer Sævar Helgi Bragason, umsjónarmaður yfir stöðuna í loftslagsmálum 🌍
Fyrsti þátturinn mánudaginn 1. febrúar kl. 20:00 á RÚV 🍿
Áramótakveðja Sagafilm
Í augum margra var löngu kominn tími til að árinu 2020 myndi ljúka. Í tilefni þess að árið hefur nú loksins runnið sitt skeið vildi Benedikt forsætisráðherra senda litla kveðju.
Með þessari áramótakveðju okkar og Vinalínu Rauða Krossins þá hvetjum við þig til að taka upp símann og hringja í einhvern sem þér þykir vænt um.
Sagafilm óskar ykkur öllum gleðilegs og farsæls komandi árs! ✨
Mjólk - Mjólkursamsalan
Nýtt verk!
Álfheiður Marta leikstýrði ungu afreksíþróttafólki í nýjum auglýsingum fyrir MS Mjólk. Myndböndin sem eru 4 talsins eru unnin uppúr viðtölum við íþróttafólkið sem með vilja, styrk og þrautseigju ná langt í sínum greinum.
Auglýsingin er unnin með Jónsa, Haffa, Erla Önnu og Frilla hjá ENNEMM fyrir Mjólkursamsalan.
Tökumaður: Thor Eliasson
Klippari: Hermann H. Hermannsson
Framleiðendur: Einar Pétursson & Ragnar Agnarsson fyrir Sagafilm
Aðstoðartökumenn: Guðjón Hrafn & Eiríkur K Júlíusson
Ljósamaður: Siggi Bahama
Leikmynd: Helga Lilja Magnúsdóttir
Hár og förðun: Íris Björk Björnsdóttir
Grip: Guðmundur Garðarsson
PA/swing: Óskar Þór Hauksson
Litaleiðrétting: Árni Gestur Sigfússon
Tónlist: Halldór Eldjárn
Hljóð: Nicolas Liebing
Hægt er að nálgast myndböndin fjögur á https://mjolk.ms.is/ ásamt ljósmyndum Svenna Speight.
Mannlíf - Nýir þættir í Sjónvarpi Símans Premium
Hvað gerist þegar maður er afbrýðisamur? En svangur? Hvað borðar Þorgerður Katrín í morgunmat og hvernig hannar maður skó? Hvernig breytast sunddrottningar í Hollywoodleikkonur og hvað hlaupa sjötugir karlar hratt?
Samfélagsmiðlastjarnan og gleðigjafinn Eva Ruza svarar þessum og fleiri áríðandi spurningum í nýju lífstílsþáttunum Mannlífi, sem sýndir eru í Sjónvarpi Símans. Eva kennir áhorfendum að elda og drekka kaffi, skoðar áhugaverða hönnun og hittir alla vega fólk sem er að gera allavega hluti.
Jóga, bernaise og Jógvan – hver sem spurningin er, þá hefur Eva svarið í Mannlífi.
Þættirnir eru komnir í Sjónvarp Símans Premium.
—
Síminn Mannlíf
Vasulka áhrifin | Upphafið
Vasulka áhrifin, er íslensk heimildamynd um vídeólistafrumkvöðlana Steinu og Woody Vasulka. Við fylgjum þeim yfir fimm ára tímabil og í gegnum sögu þeirra, verk og samstarfsfólk uppgötvum við mikilvægi þeirra í listum. Fyrir tilviljun eru þau enduruppgötvuð af listaheiminum sem þau töldu sig aldrei vera hluta af og skjótast aftur upp á stjörnuhimininn.
Í myndinni má meðal annars sjá bregða fyrir Andy Warhol, Salvador Dalí, Patti Smith, Jimi Hendrix, Jackie Curtis og Rolling Stones. Woody og Steina Vasulka stofnuðu virta sýningar- og tónlistarrýmið The Kitchen í New York.
Myndin er framleidd af Sagafilm og Krumma Films, leikstjóri er Hrafnhildur Gunnarsdóttir, framleiðandi Margrét Jónasdóttir í samstarfi við Radim Procházka í Tékklandi, Bullitt Film í Danmörku og Nonami í Svíþjóð.
Vasulka áhrifin er sýnd á RÚV í kvöld 9. mars kl 22:20.
ÁST | Skilnaðir og ástarsorg
ÁST í opinni dagskrá í kvöld á Sjónvarpi Símans!
Í sjötta þætti skoðum við sálræn atriði sem fylgja í kjölfar skilnaðar. Fólk upplifir mjög miklar sveiflur, geðraskanir, minnistap og líkamlega þætti. Við heyrum líka í barnasálfræðingum og hvernig nálgast eigi börn í þessum aðstæðum.
—
Síminn
ÁST | Aðdragandi skilnaða
ÁST í opinni dagskrá í Sjónvarpi Símans í kvöld!
Í fimmta þætti skoðum við skilnað og aðdraganda hans. Hverjar eru helst ástæður skilnaðar og hvernig má greina aðdraganda hans. Við heyrum frá sálfræðingum hvort hægt sé að koma í veg fyrir skilnað þegar hjónaband er í molum.
Öll þáttaröðin er nú þegar aðgengileg í Sjónvarpi Símans Premium
—
Síminn